Sunday, February 26, 2012

Sunnudagur til sælu!

Sit í stofunni á Bondasonsgaten 4 með hneppt frá buxunum eftir mikla átveislu í Stokkhólmi. Frábært að geta stoppað við í höfuðstaðnum á leiðinni til Algarve. Fékk frábærar móttökur frá Vigdísi, Hjálmi, Ými og Líf sem sóttu mig á flugvöllinn. Áður en lengra var haldið var splæst í smá hádegis-forrétt. Kanelbuller og kók í dós.
Síðan hittum við Guggu og hún fór með okkur á Vapiano í Gamla Stan þar sem Sara bættist líka í hópinn. (Það búa allir sem eitthvað er varið í, í Svíþjóð)   

Eftir góðan hádegisverð kíktum við aðeins í bæinn en vorum mættar heim til Gunnu og Helga í kaffi stuttu seinna. Heimabakaðar lummur og fótbolti. Þar hittum við líka Kötu og Makan. ( ég þekki c.a 1% af Stokkhólmi) Þar sem að þessi dagur snérist um það að gera vel við sig var átveislunni haldið áfram og við ákváðum að fara í kvöldmat á Indian Garden. Þeir kunna að gera góðan kjúkling þessir Indverjar. 

Í nótt fljúgum við Gugga og Kata síðan saman til Köben þar sem við hittum suður-svíana. Saman förum við svo til Lissabon og að lokum Algarve. 5 leikir á 10 dögum í sól og sumaryl (vonandi)
Smá tilbreyting frá kuldanum í Piteå. 

Ekki það að lífið í Piteå er bara fínt. Fór í 5 tíma snjósleðaferð á föstudaginn sl með einhverjum heimamönnum. Keyrðum í gegnum skóg og upp á fjall (hól) þar sem kveiktur var varðeldur og við drukkum heitt kakó og grilluðum samlokur. Ég fékk að sjálfsögðu að keyra snjósleða og var valin ökumaður ferðarinnar. (Enginn sem veit hvort ég sé að segja satt eða ekki) 




Friday, February 17, 2012

Piteås next top model er.....

ÉG!
Fínn dagur í dag krakkar mínir. Var að koma heim af konukvöldi þar sem við vorum módel í tískusýningu. Þvílíkt show!! ;)
Byrjaði daginn hinsvegar á því að elda mér kvöldmat fyrir kvöldið þar sem við vorum á leiðinni í hair and makeup strax eftir spinning og lyftingar hjá elsku Tómasi.  Svíar taka nesti með sér í allt þannig að ég ákvað að vera sænsk og elda kvöldmat og taka hann með á æfingu í staðinn fyrir að panta pizzu eins og ég hefði vætnanlega gert heima.
 Kjúklingur í red kurry og hrísgrjón ásamt sólblómafræjum. Ég er kokkur góður.

Á hárgreiðslustofunni voru settar í mig hárlengingar sem náðu mér niðrá hné. Ég var síðan máluð með gríðarfallegri blárri hooker augnmálningu.
sorrý speglamyndina en maður verður að redda sér þegar maður er einn í heiminum. 
(Já ég tók af mér málninguna)

Búin að rífa úr mér allt draslið.
Túbering x 100 + heill brúsi af hárspreyi. 
Það verður sannkölluð veisla fyrir hársáru mig að greyða þetta úr!

Annars er ekki mikið meira í fréttum.
Frí helgi þessa helgina. Elskum það.

Mamma,Pabbi og Gísli Freyr eru fyrstu gestir til þess að staðfesta komu sína til Piteå og meiga aðrir taka þau sér til fyrirmyndar. 

Ég er búin að fá eina umsókn til þess að komast upp á myndavegginn. Sú umsókn hefur verið send til dómnefndar sem mun fara vel yfir málin. Á samt von á því að dómnefndin samþyki mömmu á vegginn. 

Hafið það gott !!





Monday, February 13, 2012

Blögg nördinn er mættur aftur.
Djöfull er nördalegt að blogga.
En nördar gera nördalega hluti... þess vegna er ég að blogga. + það að ég hef lítið að gera

Við vorum að keppa um helgina fyrir áhugasama, 3 leikir á 3 dögum.
Spiluðum við 2 lið úr 1. deildinni og unnum þá leiki, 2-1 og 5-1. Síðan spiluðum við Umeå sem hafa verið mjög góðar í damallsvenskan undanfarin ár og töpuðum 1-0.

Glaðningur frá mömmu!
Þetta gladdi mitt hjarta mikið.

Annars er frekar lítið að frétta héðan. Ég er búin að eignast 2,5 vinkonur sem ég er tvisvar búin að hanga með. Ég er frekar léleg að kynnast nýju fólki og þess vegna er ég mjög stolt af þessum árangri.
Síðan er konukvöld hérna í Piteå á föstudaginn og við erum að fara að taka þátt í tískusýningu. Ekki eins og ég sé ekki reynslubolti á því sviði þannig að þetta verður lítið mál.
Ég fer í klippingu á miðvikudaginn, hárið verður litað aðeins dekkra og settar hárlengingar þannig að ég verð með hár niðrá rass. Eins gott að þetta verði tekið úr strax aftur.

Ef þessi mynd er stækkuð sést að ég er nörd eins og ég greindi frá í byrjun. 
Ég hef aðeins verið að spila hearts í tölvunni áður en ég fer að sofa (það er jafn sorglegt og það hljómar)
Ef þið stækkið myndina sést að ég breytti nöfnunum á spilurunum í Viggu, Bjarnfríði og Silla. 
Vigga og Bjarnfríður fara mest í taugarnar á mér því þær vinna alltaf. Ég og Silli skiptumst á að tapa.

Kertamanneskjan keypti kertastjaka í Indiska. Við elskum Indisku. 

Þá er þessu random bloggi lokið elsku vinir og ættingjar. 
Sakna ykkar.. en samt ekkert alvarlega mikið.
Fékk smá illt i magann þegar ég var að tala við Karmen áSkype í dag og hún rétti fram hendurnar og vildi að ég myndi taka hana upp. 
Þangað til næst..
Blessss


Thursday, February 9, 2012

Sushi time! Ágætis Sushi staður í Piteå sem heitir Sushi og Te.
Ekki endilega besta sushi sem ég hef smakkað en það var samt bara nokkuð ágætt.

Sushi og Te = 3 H af 5 mögulegum.

Í dag var morgunæfing og er það eina æfing dagsins þar sem að við erum að fara að keppa 3 æfingaleiki á 3 dögum. Föst, Lau og Sun. Það verður fínt að sjá hvernig liðið spilar í þessum leikjum þar sem að við erum svo margar nýjar.

Á eftir er ég að fara með stelpu úr liðinu sem er líka ný og hún er að fara að kaupa sér flatskjá svo hún geti spilað á play station 3 tölvuna sína. Hún vill endilega að ég komi svo og spili með henni Fifa 12 og Call of duty!
Gauralegt? Bara smá. Þetta er samt alls ekki gauraleg stelpa en hún er fædd 90 þannig að kannski missti ég bara af því þegar stelpur byrjuðu að spila skotleiki.

Þetta má stundum.
Afmælisgjöf fyrir lítinn uppáhalds afmælisfrænda, hlaupaskór og húfa og vetlingar.

Í dag er heiðskýrt, logn og -14°og ég get svo svarið það að ég fékk smá vor fíling í mig sem er kannski skrýtið þar sem það var samt -14. Nú er allavega hægt að labba um án þess að fá kal í andlitið.
Klöppum fyrir því.


Sunday, February 5, 2012

Storforsa..

Var að koma heim frá Storforsa þar sem liðið fór saman í gær í einhversskonar hópeflisdæmi enda margir nýir leikmenn og nýr þjálfari. 
Við byrjuðum daginn á keppni milli 5 liða, blak, píla, handbolti o.fl. 
Mitt lið tapaði. 
Síðan borðuðum við hádegismat í svona kofa þar sem var varðeldur í miðjunni, agalega huggulegt.
 Í matinn var píta með hreindýrakjöti. Uppáhaldið mitt.
Þennan dag sýndi "hita" mælirinn -39°. 
Í morgun var síðan vaknað snemma og farið í göngutúr til þess að skoða Storforsa. Í stuttu máli er Storforsa ekki Stór foss eins og ég hefði haldið heldur er þetta á. Mjög merkilegt það.
Það var eingöngu -30 í dag og ég náði að klæða af mér mesta kuldann. Verst þegar augnhárin og horið frýs. 
Fleira var það ekki í bili. 
Nú tekur við vika #2 í Piteå. 
logn, sól og -39°
Storforsa
Úlpan & hárið aðeins byrjað að frjósa

Friday, February 3, 2012

-31°

Fyrstu vikunni í Piteå að ljúka og so far so good. 
Kom hingað á Sunnudaginn og vissi ekkert hvað ég var að fara út í, vissi bara að það yrði kalt! 
Bærinn virkar mjög fínn, held það búi eitthvað í kringum 20 þúsund manns hérna. 
Sætur miðbær og ég bý c.a 2 eða 3 km frá honum. 
H&M, Ginatricot og fleiri búðir eiga eflaust eftir að halda á mér smá hita í þessu ruglaða veðri sem er hérna.
Fór aðeins út í morgun og þá var -29°. Aldrei vitað annað eins. Andlitið á mér fraus. Spáð -31..
En það góða við veðrið er að það er enginn vindur eins og blæs einstakasinnum á Íslandi, þannig að veðrið er í rauninni mjög gott ef maður klæðir sig bara almennilega.

Þeir sem vilja komast upp á myndavegginn geta sent inn umsókn.  

Æfingarnar eru fínar, æft tvisvar á dag á þriðjudögum og fimmtudögum og sem betur fer æfum við inni.
Búin að fara í 2 fitness tíma og þeir eru búnir að vera mjög erfiðir en sem betur fer er fitness þjálfarinn hinn fullkomni karlmaður þannig að maður reynir að þrauka.

Núna um helgina erum við að fara til Storforsa, gistum á hóteli þar og gerum eitthvað skemmtilegt. 

ÆSISPENNANDI!

Verður fínt verkefni að fylla fataherbergið..

Meira síðar! Hej do