Sit í stofunni á Bondasonsgaten 4 með hneppt frá buxunum eftir mikla átveislu í Stokkhólmi. Frábært að geta stoppað við í höfuðstaðnum á leiðinni til Algarve. Fékk frábærar móttökur frá Vigdísi, Hjálmi, Ými og Líf sem sóttu mig á flugvöllinn. Áður en lengra var haldið var splæst í smá hádegis-forrétt. Kanelbuller og kók í dós.
Síðan hittum við Guggu og hún fór með okkur á Vapiano í Gamla Stan þar sem Sara bættist líka í hópinn. (Það búa allir sem eitthvað er varið í, í Svíþjóð)
Eftir góðan hádegisverð kíktum við aðeins í bæinn en vorum mættar heim til Gunnu og Helga í kaffi stuttu seinna. Heimabakaðar lummur og fótbolti. Þar hittum við líka Kötu og Makan. ( ég þekki c.a 1% af Stokkhólmi) Þar sem að þessi dagur snérist um það að gera vel við sig var átveislunni haldið áfram og við ákváðum að fara í kvöldmat á Indian Garden. Þeir kunna að gera góðan kjúkling þessir Indverjar.
Í nótt fljúgum við Gugga og Kata síðan saman til Köben þar sem við hittum suður-svíana. Saman förum við svo til Lissabon og að lokum Algarve. 5 leikir á 10 dögum í sól og sumaryl (vonandi)
Smá tilbreyting frá kuldanum í Piteå.
Ekki það að lífið í Piteå er bara fínt. Fór í 5 tíma snjósleðaferð á föstudaginn sl með einhverjum heimamönnum. Keyrðum í gegnum skóg og upp á fjall (hól) þar sem kveiktur var varðeldur og við drukkum heitt kakó og grilluðum samlokur. Ég fékk að sjálfsögðu að keyra snjósleða og var valin ökumaður ferðarinnar. (Enginn sem veit hvort ég sé að segja satt eða ekki)



Þú hefur pottþétt verið valin ökumaður ferðarinnar, trúi þér vel. Frekar skemmtilegt allt sem þú ert að gera verð ég að segja...
ReplyDeleteÁnægð með mömmu þína og pabba, vona að ég taki þau til fyrirmyndar einn daginn!
litla frænka biður agalega vel að heilsa þér.
-Bjarnfríður
Alltaf endalaus helvítis kósýheit hjá þér. Kanelbuller, heitt kakó og ég veit ekki hvað. Segðu mér annars meira frá þessu hneppt frá buxunum....
ReplyDelete