Fyrstu vikunni í Piteå að ljúka og so far so good.
Kom hingað á Sunnudaginn og vissi ekkert hvað ég var að fara út í, vissi bara að það yrði kalt!
Bærinn virkar mjög fínn, held það búi eitthvað í kringum 20 þúsund manns hérna.
Sætur miðbær og ég bý c.a 2 eða 3 km frá honum.
H&M, Ginatricot og fleiri búðir eiga eflaust eftir að halda á mér smá hita í þessu ruglaða veðri sem er hérna.
Fór aðeins út í morgun og þá var -29°. Aldrei vitað annað eins. Andlitið á mér fraus. Spáð -31..
En það góða við veðrið er að það er enginn vindur eins og blæs einstakasinnum á Íslandi, þannig að veðrið er í rauninni mjög gott ef maður klæðir sig bara almennilega.
Þeir sem vilja komast upp á myndavegginn geta sent inn umsókn.
Æfingarnar eru fínar, æft tvisvar á dag á þriðjudögum og fimmtudögum og sem betur fer æfum við inni.
Búin að fara í 2 fitness tíma og þeir eru búnir að vera mjög erfiðir en sem betur fer er fitness þjálfarinn hinn fullkomni karlmaður þannig að maður reynir að þrauka.
Núna um helgina erum við að fara til Storforsa, gistum á hóteli þar og gerum eitthvað skemmtilegt.
ÆSISPENNANDI!
Verður fínt verkefni að fylla fataherbergið..
Meira síðar! Hej do


Djöfull er ég ánægð með þig vera með blogg!! Það verður gaman að fylgjast með þér í Svíaríki :) Þú verður nú ekki lengi að fylla þetta fataherbergi ef ég þekki þig rétt ;) En gott að þú ert ánægð með liðið og æfingarnar!
ReplyDeleteÆði pæði, búin að bæta þessu bloggi í netrúntinn minn ;) Hafðu það gott Stacy ;*
ReplyDeleteKv. Unnur