Blögg nördinn er mættur aftur.
Djöfull er nördalegt að blogga.
En nördar gera nördalega hluti... þess vegna er ég að blogga. + það að ég hef lítið að gera
Við vorum að keppa um helgina fyrir áhugasama, 3 leikir á 3 dögum.
Spiluðum við 2 lið úr 1. deildinni og unnum þá leiki, 2-1 og 5-1. Síðan spiluðum við Umeå sem hafa verið mjög góðar í damallsvenskan undanfarin ár og töpuðum 1-0.
Glaðningur frá mömmu!
Þetta gladdi mitt hjarta mikið.
Annars er frekar lítið að frétta héðan. Ég er búin að eignast 2,5 vinkonur sem ég er tvisvar búin að hanga með. Ég er frekar léleg að kynnast nýju fólki og þess vegna er ég mjög stolt af þessum árangri.
Síðan er konukvöld hérna í Piteå á föstudaginn og við erum að fara að taka þátt í tískusýningu. Ekki eins og ég sé ekki reynslubolti á því sviði þannig að þetta verður lítið mál.
Ég fer í klippingu á miðvikudaginn, hárið verður litað aðeins dekkra og settar hárlengingar þannig að ég verð með hár niðrá rass. Eins gott að þetta verði tekið úr strax aftur.
Ef þessi mynd er stækkuð sést að ég er nörd eins og ég greindi frá í byrjun.
Ég hef aðeins verið að spila hearts í tölvunni áður en ég fer að sofa (það er jafn sorglegt og það hljómar)
Ef þið stækkið myndina sést að ég breytti nöfnunum á spilurunum í Viggu, Bjarnfríði og Silla.
Vigga og Bjarnfríður fara mest í taugarnar á mér því þær vinna alltaf. Ég og Silli skiptumst á að tapa.
Kertamanneskjan keypti kertastjaka í Indiska. Við elskum Indisku.
Þá er þessu random bloggi lokið elsku vinir og ættingjar.
Sakna ykkar.. en samt ekkert alvarlega mikið.
Fékk smá illt i magann þegar ég var að tala við Karmen áSkype í dag og hún rétti fram hendurnar og vildi að ég myndi taka hana upp.
Þangað til næst..
Blessss

Hehehe litli lúðinn minn! ánægð með að ég sé að vinna í hears, ekki líkt mér að vinna (nema þá með smá tilfæringum).
ReplyDeleteVið elskum Indiska, það er rétt!
Karmen Sólveig fór að gráta þegar ég lokaði tölvunni og kallaði á þig... bara svona til að gera þér þetta enn óbærilegra! eeeeeeeeeeeen ég meina, ekki nema rúmir 4 mánuðir í þig, verður enga stund að líða ;)
Hahaha þið Silli eigið ekki séns í okkur Bíu - við erum bestar í Hearts! En ég er samt ánægð með að þú finnir þér eitthvað til dundurs... gætir líka tekið eina ónefnda vinkonu okkur þér til fyrirmyndar og horft á klám!
ReplyDeleteEn settu nú mynd af þessum nýju vinkonum hér inn... ég er sérstaklega spennt fyrir því að sjá þessa hálfu vinkonu þína :)
Farðu svo að koma - Stokkhólmur saknar þín!
Ánægð að þú hafir tekið Mökberu með þér út. Kertaljós og væntanlega bleikur sloppur á hverju kvöldi.
ReplyDeleteGott að eiga góða mömmu ;) Hvernig gekk þér í leikjunum? Verðum að taka skype í vikunni, kanksi við getum tekið aftur svona conference skype deit með Bjarnfríði :) Og Bjarnfríður þú veist að þú getur commentað undir þínu nafni ;)
ReplyDeletehttp://www.pitea-tidningen.se/bloggar/bloggentry.aspx?blogg=3838396&entry=6711569
ReplyDeletehttp://www.kuriren.nu/bloggar/bloggentry.aspx?blogg=5343933&entry=6301234
Piteå-tidningen og Kuriren með fréttirnar! Sensasjón í Norðurbotni!!
Värre kanske det var defensivt, men det skapades en del chanser från "Halle Berry" och norskan framför henne.
ReplyDeleteHehehehe...Halle Berry!
Kv. Anonymous Maja
hahaha ég elska hearts, það er frábær leikur, ekkert að því að skýra meðspilendur, gangi þér vel með það og vonandi ferðu að taka Viggu og BL í bakery ;) Og til hamingju með 2,5 vinkonurnar, stórglæsilegur árangur, þekki það af eigin raun, löng saga eeen allavega hafðu það gott áfram <3 ;*
ReplyDeleteKv UnnurS
Vildi að ég gæti lækað commentin...
ReplyDeletemitt líka?
ReplyDelete