ÉG!
Fínn dagur í dag krakkar mínir. Var að koma heim af konukvöldi þar sem við vorum módel í tískusýningu. Þvílíkt show!! ;)
Byrjaði daginn hinsvegar á því að elda mér kvöldmat fyrir kvöldið þar sem við vorum á leiðinni í hair and makeup strax eftir spinning og lyftingar hjá elsku Tómasi. Svíar taka nesti með sér í allt þannig að ég ákvað að vera sænsk og elda kvöldmat og taka hann með á æfingu í staðinn fyrir að panta pizzu eins og ég hefði vætnanlega gert heima.
Kjúklingur í red kurry og hrísgrjón ásamt sólblómafræjum. Ég er kokkur góður.
Á hárgreiðslustofunni voru settar í mig hárlengingar sem náðu mér niðrá hné. Ég var síðan máluð með gríðarfallegri blárri hooker augnmálningu.
sorrý speglamyndina en maður verður að redda sér þegar maður er einn í heiminum.
(Já ég tók af mér málninguna)
Búin að rífa úr mér allt draslið.
Túbering x 100 + heill brúsi af hárspreyi.
Það verður sannkölluð veisla fyrir hársáru mig að greyða þetta úr!
Annars er ekki mikið meira í fréttum.
Frí helgi þessa helgina. Elskum það.
Mamma,Pabbi og Gísli Freyr eru fyrstu gestir til þess að staðfesta komu sína til Piteå og meiga aðrir taka þau sér til fyrirmyndar.
Ég er búin að fá eina umsókn til þess að komast upp á myndavegginn. Sú umsókn hefur verið send til dómnefndar sem mun fara vel yfir málin. Á samt von á því að dómnefndin samþyki mömmu á vegginn.
Hafið það gott !!
Haha léttur Amy fílingur í þér, they try to make me go to rehab but I say no no no!
ReplyDeleteAnnars ógó dugleg að elda og að vera módel!
PME
Ég er í sjokki, komnar tvær færslur og frænka ekki búin að kíkja! Samt doldið gaman að eiga eina inni.
ReplyDeleteÆtla að lesa næstu og flippa eitthvað á kommentakerfinu.
-Bjarnfríður