Var að koma heim frá Storforsa þar sem liðið fór saman í gær í einhversskonar hópeflisdæmi enda margir nýir leikmenn og nýr þjálfari.
Við byrjuðum daginn á keppni milli 5 liða, blak, píla, handbolti o.fl.
Mitt lið tapaði.
Síðan borðuðum við hádegismat í svona kofa þar sem var varðeldur í miðjunni, agalega huggulegt.
Í matinn var píta með hreindýrakjöti. Uppáhaldið mitt.
Þennan dag sýndi "hita" mælirinn -39°.
Í morgun var síðan vaknað snemma og farið í göngutúr til þess að skoða Storforsa. Í stuttu máli er Storforsa ekki Stór foss eins og ég hefði haldið heldur er þetta á. Mjög merkilegt það.
Það var eingöngu -30 í dag og ég náði að klæða af mér mesta kuldann. Verst þegar augnhárin og horið frýs.
Fleira var það ekki í bili.
Nú tekur við vika #2 í Piteå.
logn, sól og -39°
Storforsa
Úlpan & hárið aðeins byrjað að frjósa





vá þvílíkt vetrarríki! mér varð bara kalt á að lesa þetta.. en góða skemmtun við að fylla fataherbergið! :o)
ReplyDeleteFlottar myndir ekkert smá fallegt þarna!! Ég vildi að það væri oftar logn, sól og frost á íslandi, elska þannig veður en kanksi ekki alveg -39° ;)
ReplyDeleteVÁÁÁ... hvað það er æðislega fallegt þarna og matstaðurinn eða hvað sem þetta er er alveg sjúklega flotur!! Hvað er þetta annars? og þú ert alveg drop dead gordjöss í -39 stigum!!! knús á þig xxx
ReplyDeleteyess gaman að fá comment! ;) Já þetta var svona einhver kofi í sem var hægt að borða í. Veit ekki alveg hvað þetta var sjálf! En já það er mjög fallegt hérna þrátt fyrir kuldann!
ReplyDeleteAlltaf svo sætt að vera með grýlukerti undir nefinu ;) Hreindýr eru besta kjöt í heimi!
ReplyDeleteÁnægð með þig frænk! Sammála Dagrúnu, aðeins of fallegt þarna... pínu eins og í Narníu ;)
ReplyDeleteMamma biður að heilsa og sagði að þú tækir þig einkar vel út með húfuna!
Puss och kram lilla
Þín,
Besta frænka
Æðislega fallegt, ertu búin að eignast vini ? Ég er svo spennt fyrir því þegar stelpurnar í liðinu fatta hvað þær hafa fengið mikinn snilling í sínar raðir ;) Hafðu það gott elskan ;*
ReplyDeleteKv. UnnurS
Hvernig er veiðin þarna á sumrin?
ReplyDeleteKv.
Jói
Haha sammála Unnur! Já ég er svona búin að "bonda" við 3 stelpur. Ein frá usa, ein frá noregi og svo er ein sænsk sem býr við hliðiná mér.
ReplyDeleteEn jói ég held að þetta sé allavega ekki á til að veiða í allt of mikill straumur. En ég skal athuga hvernig veiðin er hérna í Norrbotten ef þú lofar að koma í heimsókn :)
Knús af Lerkigrundinni, þín er sárt saknað og Theodór skilur ekkert í hvar Habbaba sé þegar hann kemur á Víðó...svo segir hann bara habbabba síþjóð ;0) Fallegar myndir af flottu vetrarríki, með von um að það fari að hlýna (alltaf sæt þótt þú sért við það að fá grýlukerti á nefið )
ReplyDeleteKv
Svala og co
Nej men altså tjenare mannen!
ReplyDeleteHur är läget? Fan va bra du har börjat blogga gumman, ganska roligt att läsa :)
Loksins að ég gat kommentað - er búin að reyna það svona 10x!
Ertu komin með sænskt númer - þú manst, three is the magic number :)
En flottar myndir úr kuldanum - og þú svona helvíti hugguleg bara!
Puss och kram úr Stokkhólmi - sem bíður alveg eftir að fá þig í heimsókn!
/Vigdís