Sushi time! Ágætis Sushi staður í Piteå sem heitir Sushi og Te.
Ekki endilega besta sushi sem ég hef smakkað en það var samt bara nokkuð ágætt.
Sushi og Te = 3 H af 5 mögulegum.
Í dag var morgunæfing og er það eina æfing dagsins þar sem að við erum að fara að keppa 3 æfingaleiki á 3 dögum. Föst, Lau og Sun. Það verður fínt að sjá hvernig liðið spilar í þessum leikjum þar sem að við erum svo margar nýjar.
Á eftir er ég að fara með stelpu úr liðinu sem er líka ný og hún er að fara að kaupa sér flatskjá svo hún geti spilað á play station 3 tölvuna sína. Hún vill endilega að ég komi svo og spili með henni Fifa 12 og Call of duty!
Gauralegt? Bara smá. Þetta er samt alls ekki gauraleg stelpa en hún er fædd 90 þannig að kannski missti ég bara af því þegar stelpur byrjuðu að spila skotleiki.
Þetta má stundum.
Afmælisgjöf fyrir lítinn uppáhalds afmælisfrænda, hlaupaskór og húfa og vetlingar.
Í dag er heiðskýrt, logn og -14°og ég get svo svarið það að ég fékk smá vor fíling í mig sem er kannski skrýtið þar sem það var samt -14. Nú er allavega hægt að labba um án þess að fá kal í andlitið.
Klöppum fyrir því.


Það er naumast! Sushi, fataherbergi og H&M..
ReplyDeleteVarstu ein á sushi staðnum eða tókstu einhverja af nýju vinkonum þínum með? Hver tók myndina?
Bið þig að setja ekki fleiri myndir af H&M verslunum hingað inn.
kv. Anonymous Anna
Já ég var ein. Setti á timer á myndavélinni. Nei ég var með Hönnu og Sofie. Þær buðu mér með sér..örugglega svona : æji verðum við ekki að bjóða helvítis útlendingnum með okkur.
ReplyDeleteDúllídúll! Sagan væri betri ef þú værir alltaf ein, að stilla vélina á timer... hahaha sé það alveg fyrir mér :-)
ReplyDeletehaha já.. þið fáið aldrei að vita hvað er satt og hvað ekki. Kannski er timer sagan alveg sönn og ég er að ímynda mér vini.
ReplyDeleteEinbeitt á svip með sushiið!
ReplyDeleteFarðu að blogga um allt sem þú kaupir Guðný... langar að sjá
-Bíbí frænk
hehehe okei okei nett..
ReplyDeletekv. Anna Garðarsdóttir